Forsvarsmenn Sjúkrahúss Akraness hafa tekið ákvörðun um að leggja niður þvottahús sjúkrahússins í þeirri mynd sem það hefur verið starfrækt á liðnum árum og áratugum. Fram hefur farið útboð á rekstri þvottahússins og hafa forsvarsmenn sjúkrahússins gengið frá samkomulagi við fyrirtæki hér í bæ sem mun sjá um allan þvott spítalans og mun rekstur þvottahússins í núverandi mynd hætta alfarið þann 1. september næstkomandi.
Formaður fundaði með starfsmönnum þvottahússins í morgun þar sem farið var yfir þau réttindamál sem lúta að starfsmönnunum. Það jákvæða í þessu máli er að stofnuninni hefur tekist að skaffa flestum þeim starfsmönnum sem starfa í þvottahúsinu vinnu annars staðar í stofnuninni.
Reyndar er mat formanns félagsins að í hvert sinn sem fyrirtæki leita hagræðingar hjá sér þá er eins og ekkert annað komi til greina en að hagræða í ræstingu, þvottahúsi eða mötuneyti. Alltaf verður starfsfólk í þessum störfum fyrir einhvers konar skerðingu eða skakkaföllum þegar um hagræðingar í rekstri er að ræða.
