Formaður félagsins mun funda með aðstoðarmanni félagsmálaráðherra og Gissurri Péturssyni, forstjóra Vinnumálastofnunar kl. 10:30 í dag. Ásamt formanni félagsins mun Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdarstjóri ASÍ, sitja fundinn.
Tilefni fundarins eru mál er lúta að fyrirtækjum sem eru með erlenda starfsmenn á félagssvæði Verkalýðsfélags Akraness. Eins og fram hefur komið á heimasíðu félagsins þá hefur félagið verið að vinna að nokkrum málum þeim tengdum að undanförnu.
Verkalýðsfélag Akraness er t.a.m. mjög óánægt með hversu mikla linkind Vinnumálastofnun hefur sýnt t.d. í máli tengdu Formaco og mun það mál meðal annarra mála verða til umræðu á þessum fundi
