Formaður félagsins ætlar að heimsækja Norðurál í fyrramálið kl 9.30 og kynna sér starf og starfsumhverfi félagsmanna VLFA. Eins mun formaður félagsins heyra hljóðið í starfsmönnum. Teknar verða myndir af starfsmönnum við hin daglegu störf og munu þær verða birtar hér á heimasíðunni. Öryggisfulltrúi Norðuráls og formaður stóriðjudeildar VLFA munu verða formanni félagsins innan handar í heimsókn þessari. Það er stefna stjórnar Verkalýðsfélags Akraness að vera í eins góðu sambandi við félagsmenn okkar og kostur er, þessi heimsókn er einn liður í því.
