Formaður félagsins fór uppí Norðurál og hitti vaktavinnufólk í gærkveldi og svo aftur í kvöld. Hefur formaður félagsins því hitt allar vaktirnar A, B, C og D. Það er afar mikilvægt, reyndar nauðsynlegt, að vera í góðu sambandi við starfsmenn til að vita hvaða hugmyndir þeir hafa til komandi kjarasamningsgerðar. Við sem erum í forsvari í þessum samningum, verðum að vita hvað starfsmenn vilja það er númer 1, 2 og 3. Formaður VLFA hefur ekki látið sitt eftir liggja í þeim efnum. Formaður félagsins vill þakka starfsmönnum Norðuráls fyrir frábærar móttökur sem hann fékk í þessum heimsóknum frá öllum vöktunum.
Formaður Verkalýðsfélags Akraness hefur farið á liðnum vikum og hitt starfsmenn Norðuráls alls 4 sinnum til að vera meðvitaður um hver vilji starfsmanna er. Á næstu dögum mun formaður heyra í dagvinnumönnum, er búinn að heyra einu sinni í þeim. Hvað varðar Íslenska járnblendifélagið þá hefur formaður haldið fundi með öllum verkamönnum Íj, hefur hann líka farið á vinnustaðinn margoft og heyrt í starfsmönnum. Það er og verður stefna okkar sem stjórnum Verkalýðsfélagi Akraness að vera í nánu sambandi við okkar félagsmenn.
