Formaður félagsins óskaði eftir að funda með Eggerti Guðmundssyni, forstjóra HB Granda vegna þess samdráttar sem átt hefur sér stað hér á Akranesi á undanförnum árum eða allt frá sameiningu HB við Granda. Við þeirri ósk varð forstjóri Granda góðfúslega . Ljóst er að formaðurinn mun óska eftir skýrum svörum um hver séu framtíðaráform fyrirtækisins hér á Akranesi og hvort frekari samdráttur sé fyrirhugaður hér á Akranesi.
Það liggur alveg fyrir að um töluverðan samdrátt hefur verið að ræða hér á Akranesi frá því HB sameinaðist Granda fyrir nokkrum árum, en um 60 störf hafa tapast frá sameiningu. Það liggur líka fyrir að samfélagið hér á Akranesi hefur orðið af umtalsverðum tekjum vegna þessa samdráttar.
Það sem Verkalýðsfélag Akraness gerir kröfu um er afar einfalt, þ.e að sanngirni ríki á milli þeirra starfsstöðva sem eru í eigu HB Granda. Formanni félagsins hefur fundist að verulega hafi hallað á okkur Skagamenn í þeim efnum sé horft á þær bláköldu staðreyndir að hjá HB Granda á Akranesi hefur fækkað um 60 störf á liðnum misserum.
