Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, kom í heimsókn á skrifstofu félagsins í gær. Það var margt sem bar á góma hjá formanni félagsins og Guðbjarts, m.a. erfiðleikar skuldsettra heimila, Icesave og fyrirhuguð fyrningaleið, enda stóð heimsóknin yfir í rúman klukkutíma.
Formaður telur það afar mikilvægt að í fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu verði það haft að leiðarljósi að atvinnuöryggi sjómanna og fiskvinnslufólks verði tryggt með afgerandi hætti komi til verulegra breytinga á kerfinu. Guðbjartur leiðir hóp sem vinnur nú að tillögum að breytingum á núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi.
Það er alltaf ánægjulegt þegar þingmenn gefa sér tíma til að líta við á skrifstofu félagsins og ræða ýmislegt sem snertir málefni launafólks, en þessi heimsókn var afar ánægjuleg og gagnleg í alla staði.
