Formaður félagsins fór í vinnustaðaheimsókn í síldar- og fiskimjölsverksmiðjuna í gær.
Það kom fram hjá starfsmönnum að búið væri að landa um 26 þúsund tonnum að uppsjávarafla það sem af er þessu ári og er það umtalsvert meira heldur á sama tíma í fyrra. Mikil törn hefur verið á starfsmönnum verksmiðjunnar að undanförnu og nægir að nefna í því samhengi að starfsmenn hafa staðið 62 vaktir og það nánast í einni lotu.
Í janúar gekk félagið frá nýjum sérkjarasamningi fyrir starfsmenn síldarbræðslunnar sem tryggir starfsmönnum mun betri kjör heldur en sjá eldri. Það sem gert var í nýja samningum var að hinar ýmsu kaupaukagreiðslur voru færðir inní grunnlaun sem tryggir starfmönnum mun betri kjör þegar ekki eru staðnar vaktir.
