Formaður félagsins fundaði með hagfræðingi ASÍ í dag. Félagið óskaði eftir því við hagdeild ASÍ fyrir nokkrum mánuðum að hún kannaði og reiknaði út fyrir félagið hvort einhver launamunur væri á milli Norðuráls og Ísals, ennfremur var óskað eftir því að kannað yrði hvort munur sé á launakjörum milli IJ og NÁ. Niðurstöðu er að vænta frá hagfræðingi ASÍ mjög fljótlega.
Formaður félagsins nefndi við Ólaf Darra hagfræðing ASÍ hvort hann væri tilbúinn að aðstoða félagið í komandi kjarasamningum við Norðurál og IJ. Fram kom í máli Ólafs Darra að hann væri svo sannarlega tilbúinn að aðstoða félögin í komandi samningum sem verða lausir um áramótin. Er það mat Verkalýðsfélags Akraness að mikill fengur sé í aðstoð hagdeilar ASÍ í þeim erfiðu samningum sem framundan eru hjá NÁ, IJ og Sementverksmiðjunni.
