Formaður félagsins mun funda með starfsmönnum Fangs á morgun kl. 14:30. Þeir sem starfa hjá Fangi eru starfsmenn í ræstingu og mötuneyti hjá Íslenska járnblendifélaginu. Dagskrá fundarins er tilboð sem forsvarsmenn Fangs lögðu fram í dag. Ætlar formaður félagsins að fara yfir tilboðið með starfsmönnum sem barst frá forsvarsmönnum Fangs. Málið er að Verkalýðsfélag Akraness hefur gert þrjá kjarasamninga á grundartangasvæðinu á liðnum mánuðum. Það tilboð sem nú liggur fyrir handa starfsmönnum Fangs er Því miður lakara en samið hefur verið um á svæðinu á undanförnum mánuðum. Það verður því mjög erfitt fyrir Verkalýðsfélag Akraness og reyndar ómögulegt að semja á einhverjum öðrum nótum en gert var við Norðurál, Íslenska járnblendifélagið og Klafa. Það er búið að marka þá línu sem samið verður um á þessu stóriðjusvæði því kemur tilboð forsvarsmanna Fangs töluvert á óvart.
Formaður fundar með starfsmönnum Fangs á morgun
Formaður fundar með starfsmönnum Fangs á morgun
