Formaður Verkalýðsfélags Akraness og SGS í pallborði á Iðnþingi: Elkem Ísland getur verið lokað eftir þrjú ár ef ekkert breytist í samkeppnisstöðu fyrirtækisins!

Formaður Verkalýðsfélags Akraness og SGS í pallborði á Iðnþingi: Elkem Ísland getur verið lokað eftir þrjú ár ef ekkert breytist í samkeppnisstöðu fyrirtækisins!

Formaður Verkalýðsfélags Akraness og SGS í pallborði á Iðnþingi:  Elkem Ísland getur verið lokað eftir þrjú ár ef ekkert breytist í samkeppnisstöðu fyrirtækisins!

Formaður Verkalýðsfélags Akraness og formaður Starfsgreinasambands Íslands (SGS) tók þátt í pallborðsumræðum á Iðnþingi Samtaka iðnaðarins þar sem rætt var um stöðu og framtíð iðnaðar á Íslandi. Á pallborðinu var hann með Álfheiði Ágústdóttur forstjóra Elkem Ísland.

Í máli sínu lagði formaðurinn mikla áherslu á mikilvægi stóriðju fyrir íslenskt atvinnulíf og samfélög víðs vegar um landið. Hann sagði að starfsemi á Grundartanga og víðar um land væri meðal mikilvægustu stoða atvinnulífsins og hefði gríðarlega þýðingu fyrir byggðir landsins.

„Stóriðjan á Grundartanga og vítt og breitt um landið er burðarstólpi atvinnulífsins, ekki síst hér á Vesturlandi en einnig víðar. Þessi starfsemi skapar þúsundir starfa, bæði beint og óbeint, og hefur gríðarleg áhrif á lífskjör fólks og þróun samfélaga,“ sagði formaðurinn.

Hann lagði jafnframt áherslu á að stjórnvöld þyrftu að marka skýra eigendastefnu um nýtingu auðlinda landsins og hvernig tryggja megi að þær nýtist þjóðinni best.

„Við verðum að nýta auðlindir okkar á þann hátt að þær tryggi fólkinu í landinu störf og öflugt atvinnulíf. Til þess þarf að tryggja fyrirtækjum í orkufrekum iðnaði samkeppnishæf rekstrarskilyrði,“ sagði hann.

Í umræðunni benti formaðurinn einnig á mikilvægi orkufyrirtækja í efnahagslífinu og nefndi sérstaklega afkomu Landsvirkjunar á síðustu árum.

„Landsvirkjun hefur á síðustu fimm árum greitt um 110 milljarða króna í arð til ríkisins og um 70 milljarða í tekjuskatt. Það eru samtals um 180 milljarðar króna sem hafa runnið í ríkissjóð,“ sagði hann og bætti við að þessi sterka afkoma væri ekki tilkomin af sjálfu sér.

„Þessi árangur verður ekki til í einhverju tómarúmi. Hann byggir á því að hér starfar öflugur orkufrekur iðnaður sem skapar verðmæti og eftirspurn eftir orkunni,“ sagði formaðurinn.

Á pallborðinu kom jafnframt fram alvarleg staða varðandi rekstur Elkem á Grundartanga. Álfheiður Ágústdóttir sagði að samkeppnishæfi fyrirtækisins væri ekki lengur til staðar og orðaði það þannig að Elkem Ísland væri „fyrst út“ ef ekkert breyttist í rekstrarumhverfi orkufreks iðnaðar.

Þegar hún var spurð um framtíð fyrirtækisins sagði hún að núverandi raforkusamningar fyrirtækisins rynnu út eftir um þrjú ár og að ef ekkert breyttist í rekstrarskilyrðum gæti niðurstaðan orðið sú að fyrirtækið lokaði starfsemi sinni hér á landi.

Formaðurinn sagði þessi skilaboð grafalvarleg fyrir samfélagið á Vesturlandi.

„Þetta eru grafalvarleg tíðindi fyrir okkur Akurnesinga og fyrir allt svæðið. Lokun fyrirtækis af þessari stærðargráðu hefði gríðarleg áhrif á lífsafkomu hundruða fjölskyldna,“ sagði hann.

Hann benti á að áhrifin myndu ekki einungis ná til starfsmanna fyrirtækisins sjálfs heldur einnig til fjölda afleiddra starfa í þjónustu, verktöku og viðhaldi.

„Þetta myndi ekki bara snerta þá sem starfa hjá fyrirtækinu heldur einnig fjölmörg afleidd störf og fyrirtæki sem byggja afkomu sína á starfseminni. Þá myndi þetta jafnframt hafa veruleg áhrif á rekstur sveitarfélaga á svæðinu,“ sagði formaðurinn.

Að lokum lagði hann áherslu á að stjórnvöld og orkufyrirtæki yrðu að gæta þess að rekstrarumhverfi orkufreks iðnaðar á Íslandi væri áfram samkeppnishæft.

„Við verðum að passa okkur á að fara ekki með gullgæsina okkar út í móa og lóga henni. Ef við setjum of miklar álögur á greinina eða gerum rekstrarumhverfið óstöðugt getur það grafið undan þeirri verðmætasköpun sem íslenskt samfélag nýtur í dag,“ sagði formaður Verkalýðsfélags Akraness.

Fleiri fréttir

Vel heppnað trúnaðarmannanámskeið hjá VLFA
Verkalýðsfélag
Akraness

Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.

Kt. 680269-6889

Hafa samband

Afgreiðslutími

  • Mánudaga–fimmtudaga
    kl. 8:00–16:00
  • Föstudaga
    kl. 8:00–15:15

Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.