Fræðsludagur trúnaðarmanna vel sóttur hjá Verkalýðsfélagi Akraness

Fræðsludagur trúnaðarmanna vel sóttur hjá Verkalýðsfélagi Akraness

Fræðsludagur trúnaðarmanna vel sóttur hjá Verkalýðsfélagi Akraness

Verkalýðsfélag Akraness hélt fræðsludag fyrir trúnaðarmenn félagsins í gær og var mætingin mjög góð. Trúnaðarmenn frá öllum helstu vinnustöðum á félagssvæðinu mættu til leiks, sem undirstrikar sterka stöðu félagsins og mikilvægi þess að viðhalda góðu samstarfi við lykilfólk á vinnumarkaði.

Á fræðsludeginum fóru formaður félagsins og Elín Reynisdóttir, starfsmaður félagsins, ítarlega yfir helstu atriði sem snerta störf trúnaðarmanna. Þar var meðal annars fjallað um réttindi og skyldur á íslenskum vinnumarkaði, kjarasamninga félagsins, hin ýmsu lög er varða launafólk og þau réttindi sem félagsmenn njóta í gegnum aðild að félaginu.

Einnig var lögð sérstök áhersla á innleiðingu nýs félagakerfis sem mun bæta þjónustu og samskipti við félagsmenn á næstu misserum. Umræður voru líflegar og þátttakendur sýndu mikinn áhuga á efninu.

Dagurinn þótti í alla staði vel heppnaður og staðfestir mikilvægi þess að stéttarfélög séu í nánu og virku sambandi við sína trúnaðarmenn. Slík samvinna er lykilatriði í því að tryggja öfluga hagsmunagæslu fyrir félagsmenn og efla starfsemi félagsins til framtíðar.

Fleiri fréttir

Vel heppnað trúnaðarmannanámskeið hjá VLFA
Verkalýðsfélag
Akraness

Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.

Kt. 680269-6889

Hafa samband

Afgreiðslutími

  • Mánudaga–fimmtudaga
    kl. 8:00–16:00
  • Föstudaga
    kl. 8:00–15:15

Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.