Frambjóðendur Frjálslynda flokksins í Norðvestur kjördæmi þau Ragnheiður Ólafsdóttir og Sigurjón Þórðarson kíktu í heimsókn á skrifstofu félagsins í dag.
Gestirnir gerðu formanni grein fyrir helstu stefnumálum Frjálslynda flokksins í komandi kosningabaráttu og átti formaður gott spjall við þau. Til að mynda fór formaður yfir þá fækkun sem orðið hefur í landvinnslu hér á Akranesi á undanförnum árum og áratugum en þegar mest lét þá störfuðu um 500 manns við landvinnslu hér. Í dag eru þetta í kringum 200 manns.
Það er alltaf ánægjulegt þegar frambjóðendur og þingmenn í kjördæminu sjá sér fært að kíkja í heimsókn á skrifstofu félagsins og er ávalt tekið vel á móti öllum.
