Frestur til að skila inn framboðslistum til stjórnarkjörs rann út á hádegi í dag. Þar sem ekki bárust aðrir listar en sá sem stjórn og trúnaðarráð lagði fram telst sá listi sjálfkjörinn til næstu tveggja ára.
Nokkrar breytingar hafa orðið á stjórn félagsins frá því síðast. Úr stjórn gengu Auður Ásgeirsdóttir og Hjörtur Júlíusson og vill stjórn félagsins færa þeim kærar þakkir fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og þátttöku þeirra í þeirri miklu uppbyggingu sem verið hefur á starfsemi félagsins á undanförnum árum.
Í stað Auðar tekur Bryndís Ó. Guðjónsdóttir nú sæti varaformanns félagsins en Bryndís var áður ritari. Guðmundur Rúnar Davíðsson er nú ritari stjórnarinnar, Þórarinn Helgason vararitari og þau Júlíus Pétur Ingólfsson og Skúlína Guðmundsdóttir meðstjórnendur.
Nýr formaður stóriðjudeildar er Oddur Kristinn Guðmundsson. Nýr formaður sjómannadeildar er Jóhann Örn Matthíasson og nýr varaformaður þeirrar deildar er Svavar S. Guðmundsson. Nýr varaformaður almennrar deildar er Tómas Rúnar Andrésson.
Að öðru leyti hafa ekki orðið fleiri mannabreytingar í stjórn. Vill formaður bjóða stjórnarmenn hjartanlega velkomna til starfa með von um að samstarfið verði félaginu áfram jafn farsælt og það hefur verið hingað til.
Hægt er að sjá lista nýrrar stjórnar með því að smella á meira.
Aðalstjórn
|
Formaður |
Vilhjálmur Birgisson |
|
Varaformaður |
Bryndís Ó. Guðjónsdóttir |
|
Ritari |
Guðmundur R. Davíðsson |
|
Vararitari |
Þórarinn Helgason |
|
Meðstjórnandi |
Júlíus Pétur Ingólfsson |
|
Varameðstjórnandi |
Skúlína Guðmundsdóttir |
Formenn deilda
|
Stóriðjudeild |
Oddur Kristinn Guðmundsson |
|
Almenn deild |
Elí Halldórsson |
|
Opinber deild |
Sigríður Sigurðardóttir |
|
Matvæladeild |
Guðrún Linda Helgadóttir |
|
Iðnsveinadeild |
Sigurður Guðjónsson |
|
Sjómanna- og vélstjórad. |
Jóhann Örn Matthíasson |
Varaformenn deilda
|
Stóriðjudeild |
Jón Jónsson |
|
Almenn deild |
Tómas Rúnar Andrésson |
|
Opinber deild |
Guðrún Guðbjartsdóttir |
|
Matvæladeild |
Alma M. Jóhannsdóttir |
|
Iðnsveinadeild |
Þórólfur Guðmundsson |
|
Sjómanna og vélstjórad. |
Svavar S. Guðmundsson |
