Í síðustu viku lauk umfangsmiklum framkvæmdum í orlofshúsi félagsins í Ölfusborgum og er húsið nú klárt til útleigu. Miklar breytingar voru gerðar á innviðum hússins, eldhús og baðherbergi endurnýjað í hólf og gólf, hiti lagður í gólfin, milliveggur í stofunni færður til og svefnherbergjum fækkað úr þremur í tvö rúmgóð herbergi. Að auki var reist glæsileg sólstofa við húsið sem eykur notkunargildi hússins talsvert.
Eftir breytingarnar verður óneitanlega rýmra um dvalargesti sem munu vonandi eiga ánægjulega dvöl í Ölfusborgum.
