Frá árinu 2004 hefur félagsmönnum Verkalýðsfélags Akraness boðist ókeypis aðstoð við gerð einfaldra skattframtala á skrifstofu félagsins. Það er Björg Bjarnadóttir sem sér um þessa þjónustu.
Framtalsaðstoðin hófst í síðustu viku og verður í boði eins lengi og þörf er á, en síðasti dagur til að skila framtali er 22. mars. Þeir sem þurfa frest þurfa að sækja um hann á www.skattur.is og getur hann lengstur orðið til 27. mars.
Hægt er að bóka tíma í síma 430 9900.
