Eins og undanfarin ár hefur orlofssjóður Verkalýðsfélags Akraness nú gengið frá samningi um að félagsmenn í VLFA geti fengið frítt veiðileyfi í Eyrarvatni, Þórisstaðavatni og Geitabergsvatni í Svínadal. Framvísa þarf félagsskírteini en þau er hægt að nálgast inni á heimasíðu VLFA undir flipanum innskráning.
Þessi möguleiki hefur verið vel nýttur af félagsmönnum undanfarin ár og vonast stjórn VLFA til þess að félagsmenn njóti áfram góðs af þessum samningi.
