Fulltrúar Starfsgreinasambands Íslands gengu á fund heilbrigðisráðherra, Sivjar Friðleifsdóttur í gær. Erindi fundarins var að gera ráðherra grein fyrir þeim vanda sem væri að skapast á öldrunar- og heilbrigðisstofnunum, en mikil óánægja ríkir meðal þeirra starfsmanna sem eru í SGS og vinna eftir kjarasamningum við ríkið. Launakjör þessara starfsmanna eru mun lakari heldur en hjá þeim sem vinna sambærileg störf hjá sveitarfélögunum.
Þrátt fyrir að heilbrigðisráðherra beri ekki ábyrgð á kjarasamningum við starfsmenn, ber hann engu að síður pólitíska og faglega ábyrgð á því að hægt sé að halda stofnununum í rekstri. Það verður ekki gert án starfsfólks.
Starfsmenn sjúkrahús Akraness hafa komið óánægju sinni á framfæri við formann félagsins með launakjör sín og þann mikla launamun sem er á sambærilegum störfum hjá þeim sem starfa hjá sveitafélögunum. Starfsmennirnir benda réttilega á að launamunur á milli starfsmanna sem starfa hjá sveitafélögunum og hins vegar ríkinu getur numið allt að 40 þúsundum króna á mánuði fyrir nákvæmlega sömu störf. Að sjálfsögðu er þetta algerlega óviðunandi ástand og hefur formaður félagsins nú þegar sett sig í samband við forsvarsmenn SHA.
