Fundað verður hjá ríkissáttasemjara á morgun og hefst fundurinn kl. 08.30. Stéttarfélögin munu leggja fram sameiginlegar kröfur sínar, en félögin voru búin að leggja fram sérkröfur sínar á síðasta fundi. Væntanlega verður farið yfir eitthvað af þessum kröfum, einnig verður rætt um gildissvið kjarasamningsins.
