Fundað verður hjá ríkissáttasemjara í dag vegna kjaradeilu stéttarfélaganna við Íslenska járnblendifélagið fundurinn hefst kl 13. Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni þá var gengið frá samkomulagi um róteringu ofngæslumanna á fundi fyrir helgi. Það eru nokkur atriði sem starfsmenn vilja einnig sjá breytingu á t.d kaupaukana og bónusinn. Vonandi tekst að klára þessu deilu í dag og Verkalýðsfélag Akraness sæmilega bjartsýnt á að það geti tekist þó vissulega geti brugðið til beggja vona í þeim efnum.
