Forsvarsmenn Hagsmunasamtaka heimilanna óskuðu eftir að funda með formanni félagsins um þá alvarlegu stöðu sem upp er komin vegna stóraukinnar skuldastöðu heimilanna í kjölfar bankahrunsins.
Að sjálfsögðu varð formaður félagsins við þessari ósk og fór fundurinn fram á skrifstofu félagsins síðastliðinn fimmtudag.
Fram kom í máli forsvarsmanna Hagsmunasamtakanna að samtökin hafa gríðarlega áhyggjur af þeirri stöðu sem upp er komin vegna stóraukinnar skuldastöðu heimilanna í kjölfar bankahrunsins. Samtökin krefjast þess að stjórnvöld komi tafarlaust með almennar aðgerðir er lúta að leiðréttingu gengis- og verðtryggðra lána.
Fram kom í máli að forsvarsmanna samtakanna að þeir hafa verulegar áhyggjur af því að fólk gefist fljótlega upp á því að greiða af sínum skuldum sökum þess að forsendur verð- og gengistryggðra lána eru kolbrostnar. Þeim heimilum fjölgar ískyggilega hratt sem geta ekki staðið í skilum eða sjá hvorki tilgang né skynsemi í að greiða af lánum sem hækka stjórnlaust sökum þess ástands sem ríkir í íslensku efnahagslífi. Um 42% heimila eru með bága eða neikvæða eiginfjárstöðu skv. gögnum frá Seðlabanka Íslands frá síðastu áramótum.
Aðalfundur Verkalýðsfélags Akraness samþykkti ályktun sem byggist að stórum hluta á sömu kröfu og Hagsmunasamtök heimilanna leggja upp með, þ.e.a.s að stjórnvöld verða að koma með róttækar aðgerðir til bjargar heimilunum og verða þær aðgerðir að byggjast á leiðréttingu og niðurfærslu á skuldum heimilanna.
Heimasíða Hagsmunasamtaka heimilanna er www.heimilin.is
