Fulltrúar Verkalýðsfélags Akraness funduðu í morgun með Launanefnd sveitarfélaga í húsakynnum Ríkissáttasemjara vegna kjarasamnings starfsmanna Akraneskaupstaðar. Samningurinn rann út 1. desember og var þetta þriðji fundurinn sem formaður hefur átt með Launanefnd sveitarfélaga.
Á morgun munu samningsaðilar funda aftur en fundurinn í morgun var nokkuð gagnlegur og árangursríkur. Það voru nokkur atriði sem formaður gerði athugasemdir við sem eru nú til skoðunar hjá forsvarsmönnum Launanefndar sveitarfélaga og mun væntanlega fá svar við þeim spurningum á morgun.
