Formaður félagsins átti fund með starfsmannastjóra Elkem Ísland á þriðjudaginn var. Fundarefnið var það að verktakar hafa að undanförnu verið að störfum inni á svæðinu við svokallaða kjarnastarfsemi fyrirtækisins, en samkvæmt bókun sem fylgir kjarasamningi starfsmanna er kveðið á um eftirfarandi:
"Ein verðmætasta auðlind fyrirtækisins er sérþekking starfsmanna á framleiðsluþáttum og búnaði. Það er grundvallaratriði að slík þekking á kjarnastarfsemi fyrirtækisins haldist innan þess. Í því ljósi verður ekki um úthýsingu á kjarnastarfsemi fyrirtækisins að ræða."
Starfsmannastjóri Elkem var sammála formanni að þau verkefni sem hér væri um að ræða væru hluti af kjarnastarfseminni og hefðu einungis verið hugsuð í mjög skamman tíma. Var samþykkt að fyrirtækið myndi kippa þessu í liðinn innan skamms aðlögunartíma sem fyrirtækið óskaði eftir. Formaður er ánægður með þessa lausn málsins enda var fundurinn mjög góður og ánægjulegt hver viðbrögð fyrirtækisins voru við þessari athugasemd félagsins.
