Formaður félagsins hefur fundað stíft með starfsmönnum Geca hf. vegna gjaldþrots fyrirtækisins. Félagið vinnur að því að fá launaseðla og önnur gögn þannig að hægt sé að gera kröfu í þrotabúið vegna vangreiddra launa. Starfsmennirnir fengu ekki laun sín nú um mánaðarmótin eins þeir áttu rétt á. Einnig hefur ekki verið borgað inná orlofsreikninga mannanna eins og kjarasamningar kveða á um. Það er mjög erfitt að horfa uppá sína félagsmenn missa vinnu sína við þessar aðstæður og þá óvissu sem fylgir í kjölfarið. Verkalýðsfélag Akraness hefur verið að vinna að, í samvinnu við Svæðisvinnumiðlun að útvega mönnunum aðra vinnu og lítur það bara nokkuð vel út þessa stundina.
