Í dag fór formaður félagsins í vinnustaðaheimsókn til þeirra starfsmanna HB Granda sem starfa í síldarbræðslunni. Átti formaður gott samtal við starfsmennina, en sérkjarasamningur starfsmanna síldarbræðslunnar rennur út um áramótin.
Fóru starfsmenn yfir þau atriði sem þeir vilja leggja mesta áherslu á í komandi kjarasamningum. Einnig var rædd sú hugmynd að gera einn kjarasamning fyrir allar síldarbræðslurnar á landinu.
Síldarbræðslum á landinu hefur verið að fækka jafn og þétt undanfarin ár og í dag eru ekki nema þrjár til fjórar sem eru í einhverjum rekstri sem heitið getur.
Starfsmenn bræðslunnar hér á Akranesi tóku svosem ekkert fálega í þá hugmynd að gera einn kjarasamning fyrir allar bræðslurnar en þó var ekki tekin endanleg ákvörðun hvað það varðar.
Það er alveg ljóst að lagfæra þarf kjör starfsmanna síldarbræðslunnar hér á Akranesi umtalsvert í komandi kjarasamningum einfaldlega vegna þess að bræðsla á uppsjávarafla hefur dregist verulega saman á undanförnum árum. En samdráttur á bræðslu uppsjávarafla bitnar illilega á kjörum starfsmanna þar sem kjörin byggjast að verulegu leyti á vaktarálögum og öðru slíku.
