Aðalssamninganefnd Starfsgreinasambands Íslands hefur fundað stíft síðustu daga með Samtökum atvinnulífsins í húsakynnum Ríkissáttasemjara.
Eins og fram hefur komið hér á síðunni þá lögðu Samtök atvinnulífsins fram samningstilboð á laugardaginn var og liggur fyrir að það tilboð er of rýrt og ljóst að bæta þarf í launaliði þess tilboðs.
Fundur hefur verið boðaður aftur á morgun og má allt eins reikna með því að reynt verði til þrautar næstu daga og væntanlega skýrist það fyrir helgi hvort samningsaðilar nái saman eður ei.
