Samningafundur var haldinn í dag. Aðeins eitt mál var til umræðu það var um nýtt bónuskerfi starfsmanna Íslenska járnblendifélagsins. Voru menn að velta fyrir sér hugmyndum hvaða þætti eigi að nota í vigtun á nýju bónuskerfi. Komu fram ýmsar hugmyndir fram sem menn eru með til skoðunar. Næsti fundur er á mánudaginn og verða sérmál ofn og dagmanna til umræðu þá.
