Fundað verður um nýjan kjarasamning fyrir starfsmenn Klafa á morgun og hefst fundurinn kl 15:30. Samningsaðilar hafa lokið við að taka þau ákvæði sem eru í kjarasamningi Íslenska járnblendifélagsins og notuð verða i nýjum kjarasamningi fyrir starfsmenn Klafa. Á fundinum á morgun kemur í ljós hvort gengið verður frá nýjum samningi á næstu dögum eða ekki.
