Fundað var hjá ríkissáttasemjara í dag vegna kjaradeilu stéttarfélaganna við Íslenska járnblendifélagið. Voru deiluaðilar að ræða um nýtt bónuskerfi og eru samningsaðilar langt komir með það mál. Hinsvegar ber töluvert á milli deiluaðila hvað varðar aðrar kröfur stéttarfélaganna. Samningsaðilar voru samt sem áður sammála um að hittast á föstudaginn kl. 13:00 hjá sáttasemjara.
