Samningafundur var haldinn með forsvarsmönnum Norðuráls í dag. Fundað var í húsakynninum ríkissáttasemjara. Ekkert markvisst gerðist á fundinum í dag en aðilar eru að ræða saman og reyna að finna einhverja lausn sem báðir aðilar geta verið ásáttir með. Ljóst er samt sem áður að töluvert ber á milli aðila. Á morgun munu nokkrir úr samninganefnd stéttarfélaganna funda með hagfræðingi ASÍ og fulltrúum Norðuráls. Eftir þennan fund á morgun mun væntanlega verða ákveðið hvernig framhaldinu verður háttað í þessum viðræðum
