Fundur var haldinn í Samráðsnefnd Sjúkrahúss Akraness fimmtudaginn 1. september. Samráðsnefndin saman stendur af þremur fulltrúum frá SHA og þremur frá starfsmönnum ásamt formanni félagsins. Hlutverk Samráðsnefndarinnar er að taka á og reyna að fá niðurstöðu í þeim ágreiningsmálum sem upp kunna að koma, varðandi túlkanir á kjarasamningi starfsmanna, sem og öðrum ágreiningsmálum . Það mál sem nú var til umræðu á þessum fundi er ágreiningur um túlkun á grein í kjarasamningi og fjallar um hvort starfsmenn eigi rétt á endurgjaldslausri læknisþjónustu. Verkalýðsfélag Akraness gerði samkomulag við fjármálaráðherra 4. apríl 2004 um sérmál starfsmanna og þar segir orðrétt.
,,Eftirfarandi ákvæði greina 6.1.1 og 6.2.1 í kjarasamningi Verkalýðsfélags Akraness dags. 5. desember 2000, ,,...og þarf starfsmaður ekki að greiða þá læknisþjónustu eða lyf sem veitt eru innan stofnunarinnar sem hluti af þjónustu hennar. " haldist til og með 31.03.2008 en falli þá niður."
Ágreiningurinn er um hvort starfsmenn eigi rétt á að fá alla læknisþjónustu sem veitt er á SHA endurgjaldslausa eða einungis hluta hennar. Til að mynda vilja forsvarsmenn SHA meina að allir þeir sérfræðingar sem eru með aðstöðu hér á sjúkrahúsi Akraness séu ekki hluti af þeirri þjónustu sem SHA er að veita. Og þess vegna fá starfsmenn ekki endurgreitt þegar þeir leita læknisþjónustu hjá sérfræðingum sem starfa á SHA. Þessu er Verkalýðsfélag Akraness ósammála og byggir þá skoðun sína á lögfræðilegu áliti sem félagið lét gera vegna þessa máls. Allt bendir því til þess að stéttarfélagið muni láta á þetta reyna fyrir dómi. Formaður fundaði á föstudaginn með starfsmönnum þar sem þeim var gerð ýtarleg grein fyrir málinu, og fengin var afstaða þeirra hvort það ætti að fara með málið alla leið eða ekki.
