Samningafundur var haldinn í dag vegna kjarasamnings starfsmanna Klafa. Það eru ein 3 til 4 atriði sem verulegur ágreiningur er um á milli samningsaðila. Það er mat Verkalýðsfélags Akraness að viðræðurnar séu á afar viðkvæmu stigi og brugðið geti til beggja átta í þeim efnum. Næsti samningafundur er á föstudaginn 20. maí kl 10:00, á þeim fundi kemur væntanlega í ljós hvort samningsaðilar séu að nálgast eða ekki.
