Fundur verður á morgun um nýjan kjarasamning við Íslenska járnblendifélagið. Aðeins eitt mál verður til umræðu á þessum fundi það er krafa stéttarfélaganna um stóriðjuskóla fyrir verkamenn. Krafan er að stóriðjuskóli verði starfræktur með sambærilegu sniði og gerist hjá Ísal. Verkamenn sem lokið hafa námi í stóriðjuskóla Ísals fá 10.5% launahækkun á grunnlaunin.
