Síðastliðinn laugardag stóðu Verkalýðsfélag Akraness og VR fyrir opnum fundi í Háskólabíói sem bar yfirskriftina "Guð blessi heimilin - okurvextir og verðtrygging, mesta böl þjóðarinnar". Framsögu á fundinum höfðu Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness, Ólafur Margeirsson doktor í hagfræði, Ásta Lóa Þórsdóttir formaður Hagsmunasamtaka heimilanna og Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Auk þess var fulltrúum allra stjórnmálaflokka sem bjóða fram til Alþingis boðið að senda fulltrúa á fundinn til að kynna hvað þeirra flokkur ætlar að gera varðandi okurvextina og verðtrygginguna á lánum heimilanna.
Í sinni framsögu gagnrýndi Vilhjálmur, formaður VLFA, harðlega Seðlabankann og stjórnvöld og hvatti þau til að vera á tánum en ekki á hnjánum gagnvart fjármagnseigendum þegar kemur að því að verja heimili landsins gegn okurvöxtum og verðtryggingu. Hann benti meðal annars á það að verðtryggðir vextir á Íslandi eru hærri en óverðtryggðir vextir í löndunum í kringum okkur.
Einnig sagði Vilhjálmur að í raun ætti Seðlabankinn að vera fremstur í flokki í baráttunni fyrir afnámi verðtryggingar því þegar ókostir verðtrygginar á neytendalánum eru skoðaðir kemur í ljós að hún leiðir af sér aukið peningamagn í umferð og verðbólguþrýsting, gengur gegn eðlilegum lögmálum og varfærni í lántöku, hvetur til of mikillar skuldsetningar og dregur úr virkni peningamálastefnu Seðlabankans.
Glærur Vilhjálms má skoða með því að smella hér.
Glærur Ólafs Margeirssonar má skoða með því að smella hér.
Fundinum var streymt beint á netinu og er hægt að hlusta og horfa hér.
