Verkalýðsfélag Akraness vill minna á opinn upplýsinga- og fræðslufund sem haldinn verður í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi, í kvöld miðvikudaginn 26. nóvember kl. 20:00.
Yfirskrift fundarins er: „Úrræði vegna efnahagsmála“
Eftirtaldir aðilar eru með framsögu:
- Íbúðalánasjóður: „Úrræði Íbúðalánasjóðs vegna greiðsluvanda" Svanhildur Guðmundsdóttir sviðsstjóri.
- Félags- og tryggingamálaráðuneytið: „Aðgerðir í þágu heimilanna“ Guðbjartur Hannesson formaður félags- og tryggingamálanefndar Alþingis og fulltrúi í starfshópi í félags- og tryggingamálaráðneyti um aðgerðir í þágu heimilanna.
- Vinnumálastofnun: „Atvinnuleysisbætur“ Gunnar Richardsson forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Vesturlandi.
- Alþýðusamband Íslands: „Staða Heimilanna“ Ólafur Darri Andrason hagfræðingur ASÍ.
- Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi: „Í aukinni færni felst styrkur” Inga Dóra Halldórsdóttir framkvæmdastjóri
Að loknum framsöguerindum verður opnað fyrir spurningar úr sal.
Fundarstjóri: Ólafur Hauksson.
Að fundinum standa: Akraneskaupstaður, Sýslumaðurinn á Akranesi, Verkalýðsfélag Akraness og Vinnumálastofnun
