Verkalýðsfélag Akraness minnir á fund sem haldinn verður með starfsmönnum Norðuráls í Bíóhöllinni á Akranesi í kvöld, fimmtudag, kl. 20:30.
Á fundinum verður farið yfir þá grafalvarlegu stöðu sem upp er komin í kjaradeilu félagsins við Norðurál en nú er að verða hálft ár síðan launaliður samningsins rann út og ekkert þokast í viðræðum.
Félagið hvetur starfsmenn Norðuráls til að fjölmenna á þennan áríðandi fund og taka þátt í að ákveða hver næstu skref verða í þessari erfiðu deilu.
