Húsakynni ríkissáttasemjaraEins og fram kom hér á heimasíðunni í morgun þá óskaði Verkalýðsfélag Akraness eftir því við Samtök atvinnulífsins að haldinn yrði samningafundur vegna launaliðar Norðuráls sem rann út um áramótin. Það er skemmst frá því að segja að Samtök atvinnulífsins hafa svarað ósk félagsins og er fyrsti formlegi samningafundur um launaliðinn fyrirhugaður á föstudaginn kl. 13 í húsakynnum ríkissáttasemjara.
