Stóriðjudeild Verkalýðsfélags Akraness mun standa fyrir opnum fundi um réttindi og skyldur á íslenskum vinnumarkaði seinni part nóvember mánaðar.
Undirbúningur fyrir fundinn er nú þegar hafinn og hefur félagið t.d. fengið Magnús Norðdahl deildarstjóra lögfræðideildar ASÍ til að fara ítarlega yfir réttindi og skyldur á íslenskum vinnumarkaði.
Fundurinn verður auglýstur þegar nær dregur.
