Fundur verður haldinn vegna launaliðar kjarasamnings Norðuráls klukkan 13 í dag í húsakynnum ríkissáttasemjara. Þetta er fyrsti fundurinn vegna Norðuráls í langan tíma og löngu orðið tímabært að fara að koma þeim samningaviðræðum á skrið enda var launaliðurinn laus nú um áramótin.
Kröfurnar eru skýrar og er algjört grundvallaratriði að sömu kjör náist og í nýgerðum kjarasamningi við Elkem Ísland auk þeirra þriggja prósenta sem skilja þessar tvær verksmiðjur að þegar kemur að launum starfsmanna þeirra. Annað sem lögð verður áhersla á er meðal annars hækkun grunnlauna sem og bónuskerfið. Álverð er nú í hæstu hæðum og því er ekki afsakanlegt að fyrirtækið láti starfsmenn sína ekki njóta þess góða ávinnings sem af því hefur hlotist.
