Nú hafa íbúðirnar okkar á Akureyri loksins fengið smá yfirhalningu. Starfsmenn VLFA fóru norður og endurnýjuðu húsgögn, borðbúnað og fleira.
Í íbúðunum þremur eru tvö svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi með sturtu og þvottavél. Rúmin eru 160 cm í stærri herbergjunum og 120 cm í minni herbergjunum. Sængur og koddar eru fyrir fimm í hverri íbúð.
Í öllum íbúðunum eru góðar og stórar svalir.
Eins og áður er það Securitas sem sér um að þjónusta íbúðirnar fyrir okkur, þau sjá um afhendingu lykla, fylla á gasið, afhenda hreinar tuskur og fleira.
