Fyrirtækjasamningur við Fang ehf. var samþykktur með öllum greiddum atkvæðum og virðist starfsmenn vera mjög ánægðir með samning ef marka má kosningu um samning. En á kjörskrá voru 13 starfsmenn og 10 starfsmenn kusu eða 77%. Já sögðu 10 starfsmenn eða 100%
Verkalýðsfélag Akraness vill enn og aftur þakka trúnaðarmanni Fangs sem og öllum starfsmönnum fyrir aðstoðina við gerð þessa samnings sem er heilt yfir mjög góður fyrir starfsmenn Fangs.
