Fyrri úthlutun orlofshúsa sumarið 2010 er nú lokið og gekk vonum framar. Í fyrsta sinn var nú hægt að skila umsóknum á Félagavefnum og bárust um helmingur umsókna á þann hátt sem er mun hærra hlutfall en vonast var eftir.
Svarbréf til allra umsækjenda, hvort sem þeir fengu úthlutað eða ekki, voru póstlögð í gær. Þeir sem fengu úthlutað geta nú þegar séð bókun sína á Félagavefnum (undir Orlofshús og Bókunarsaga) og geta á sama stað greitt með greiðslukorti. Einnig er hægt að ganga frá greiðslu með millifærslu í heimabanka eða á skrifstofu félagsins. Ganga verður frá greiðslu fyrir eindaga sem er 23. apríl.
Eftir eindaga verða ógreiddar bókanir felldar niður og teknar til endurúthlutunar. Allir þeir sem ekki fengu úthlutað í fyrri úthlutun eru sjálfkrafa með í endurúthlutun og einnig geta þeir sem voru seinir fyrir skilað inn umsókn. Þeim sem eiga inni umsókn í endurúthlutun er bent á að hægt er að breyta umsókninni fyrir endurúthlutunina til að auka möguleika á að fá úthlutað. Nú þegar er hægt að sjá á Félagavefnum (undir Orlofshús og Laus orlofshús) hvaða vikur gengu ekki út í fyrri úthlutun. Eftir eindaga, 23. apríl, mun þessum lausu vikum fjölga umtalsvert þegar búið er að fella niður ógreiddar bókanir.
Frestur til að skila nýjum eða breyttum umsóknum í endurúthlutun er til miðnættis 28. apríl. Endilega hafið samband við skrifstofu ef aðstoðar er þörf við umsóknarferlið eða ef spurningar vakna við notkun Félagavefsins..
