Áform eru um að stækka Járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga og bæta jafnvel við tveimur ofnum. Þetta kemur fram í viðtali í norska blaðinu Aftenposten við Johan Svensson, forstjóra verksmiðjunnar en verksmiðjan er í eigu norska fyrirtækisins Elkem.
Svensson segir í viðtalinu að framleiðslukostnaður á Íslandi sé mun lægri en í Noregi. Þá sé hið pólitíska umhverfi stöðugt. Verið sé að íhuga að bæta fjórða og fimmta ofninum við í verksmiðjunni á Grundartanga og helsta ástæðan fyrir þeim stækkunaráformum sé hagstætt raforkuverð á Íslandi. Þá sé einnig stefnt að því að auka framleiðslu á sérhæfðari vöru í verksmiðjunni.
Verkalýðsfélag Akraness er afar ánægt með að rekstur fyrirtækisins gangi jafn vel og segir í fréttinni. Verkalýðsfélag Akraness telur að þessi góða afkoma muni væntanlega liðka vel fyrir komandi samningum við Íslenska járnblendifélagið. Næsti fundur vegna nýs kjarasamnings er á þriðjudaginn, og verður fundurinn haldinn í húsakynnum Ríkissáttasemjara, hefst fundurinn kl. 13.00.
