Formaður fór í vinnustaðaheimsókn til Norðuráls síðasta föstudag, en stjórn félagsins leggur mikla áherslu á að vera í nánu og góðu sambandi við félagsmenn sína og var þessi vinnustaðaheimsókn einn liður í þeirri vinnu.
Á föstudaginn var það C vaktin sem formaður heimsótti og fór formaðurinn víða um verksmiðjuna og tók tugi starfsmanna tali en heimsóknin stóð í tæpa þrjá tíma.
Þau mál sem brunnu helst á starfsmönnum voru öryggis og launamál og fékk formaður fjölmargar spurningar þessum málum tengdar. Formaður er ekki í neinum vafa um að öryggismál Norðuráls verða tekin föstum tökum á næstu misserum. Sérstaklega í ljósi þess að öll orka fyrirtækisins á liðnum árum hefur farið í stækkun verksmiðjunnar, nú er þeim kafla hins vegar lokið. Á þeirri forsendu munu forsvarsmenn Norðurál geta einbeitt sér mun betur að þeim þáttum er lúta að innri kjarastarfsemi fyrirtækisins t.d. öryggismálum.
Fram kom í máli formanns að í næstu kjarasamningum verður gerð skýlaus krafa um að minnka launamuninn á milli Alcan og Norðuráls enn frekar. Enda er það með öllu óásættanlegt að það skuli ríkja launamunur á milli verkasmiðja í sömu starfsgrein.
Þessi heimsókn var feikilega vel heppnuð og mun formaður stefna að því að heimsækja allar vaktirnar á næstu vikum. Í dag starfa um 500 manns hjá Norðuráli og eru um 400 þeirra félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness.
