Greitt úr félagsmannasjóði

Greitt úr félagsmannasjóði

Greitt úr félagsmannasjóði

Búið er að greiða út úr félagsmannasjóði til þeirra sem starfa eftir kjarasamningi við sveitarfélögin og er það í fimmta sinn sem greitt er úr sjóðnum. Upphaflega var samið um stofnun félagsmannasjóðsins fyrir 5 árum og var þá mánaðarlegt framlag 1,5% af heildarlaunum félagsmanna. Í nýjum kjarasamningi sem gildir frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028 var þetta framlag hækkað í 2,2%. Úthlutun úr sjóðnum fer fram 1. febrúar ár hvert.

Að þessu sinni nam greiðslan úr sjóðnum tæpum 48 milljónum og voru það 686 félagsmenn sem fengu greitt. Í heildina hafa því verið greiddar um 157 milljónir úr sjóðnum frá upphafi. Þeir félagsmenn sem vinna eftir þessum samningi og eiga rétt á greiðslu úr sjóðnum fengu sent bréf þar sem fram kom sú upphæð sem viðkomandi fékk greidda.

Fleiri fréttir

Vel heppnað trúnaðarmannanámskeið hjá VLFA
Verkalýðsfélag
Akraness

Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.

Kt. 680269-6889

Hafa samband

Afgreiðslutími

  • Mánudaga–fimmtudaga
    kl. 8:00–16:00
  • Föstudaga
    kl. 8:00–15:15

Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.