Grindhvalavaða er nú um 100 metra frá landi við Leyni á Akranesi, en hópur fólks hefur safnast þar saman til að berja vöðuna augum. Nú er bara að vona að vaðan fari sér ekki að voða því afar stutt er í miklar grynningar í Leynisvíkinni þar sem þeir svamla nú í hringi. Ugglaust er þetta sama vaða og var fyrir neðan byggðina í Innri-Njarðvík á laugardaginn, en sjón er sögu ríkari.
Grindhvalavaða á Akranesi
Grindhvalavaða á Akranesi
