|
|
|
|
Dagskrá fundarins er eftirfarandi: 1. Maí Akranesi! Verkalýðsfélag Akraness, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, VR, FIT Félag iðn- og tæknigreina Kennarasamband Íslands og Sjúkraliðafélag Íslands standa fyrir dagskrá á hátíðar- og baráttudegi verkafólks 1. maí Safnast verður saman við Kirkjubraut 40, kl. 14:00 og genginn verður hringur á neðri-Skaga. Að göngu lokinni verður hátíðardagskrá í sal Verkalýðsfélags Akraness á 3ju hæð Kirkjubrautar 40. Dagskrárstjóri: Gísli S. Einarsson bæjarstjóri Ræðumaður dagsins: Gylfi Arnbjörnsson framkvæmdastj. ASÍ Kvennakórinn Ymursyngur nokkur lög Kaffiveitingar Frítt í bíó fyrir börnin í Bíóhöllinni kl. 15:00 Félagsmenn fjölmennið! 1. maí-nefndin |

Gylfi Arnbjörnsson framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands verður ræðumaður á 1. maí hátíðarhöldunum á Akranesi. Kjörorð dagsins er Verjum kjörin og er það ekki að ástæðulausu sem það slagorð er valið í ár.