Haldinn var fundur í dag þar sem hagfræðingur ASÍ fór yfir drög að launasamanburði sem hann hefur verið að vinna að undanförnu. Á þeim fundi voru trúnaðarmenn Norðuráls og formenn þeirra félagana sem eiga aðild að sameiginlegum kjarasamningi við Norðurál. Hagfræðingur ASÍ fór yfir þá vinnu sem hann vann í samráði við VLFA og aðaltrúnaðarmann Norðuráls í að bera saman laun í þremur verksmiðjam þ.e Norðurál, Ísal og Íslenska járnblendifélaginu.
Niðurstaða þeirra athugunar leiðir í ljós eftir þeim forsendum sem unnið var eftir, að um töluverðan launamun er um að ræða hjá verkamönnum í dagvinnu sem og verkamönnum í vaktavinnu. Menn telja að launamunur á milli Norðuráls og Ísals hjá verkamönnum í dagvinnu geti verið í kringum 10%. Því til viðbótar eiga starfsmenn Ísals sem starfa sem dagmenn og starfað hafa í þrjú ár eða lengur rétt á vetrarfríi upp á 6 daga. Þess ber að geta að dagmenn Norðuráls eiga ekki rétt á vetrarfríi. Hjá verkamönnum í vaktavinnu telja menn eftir þeim forsendum sem unnið var eftir, að launamunur milli Norðuráls og Ísals geti verið í kringum 11%. Að auki stendur verkamönnum sem starfa hjá Ísal til boða að fara í stóriðjuskóla sem veitir þeim launahækkun frá 9.5% til 10.5% ofan á grunnlaunin, námið er í 325 klukkustundir og er kostað af Ísal. Meirihluti verkamanna hjá Ísal hefur nú þegar lokið námi í stóriðjuskólanum sem hefur veitt þeim þær launahækkanir sem í boði eru. Því liggur það nokkuð ljóst fyrir að launamunur þessara verksmiðja er allverulegur, og getur því orðið yfir 20% hjá þeim sem lokið hafa námi í stóriðjuskólanum. Hægt er að skoða myndir af fundinum með því að smella á myndir og smella síðan á Norðurál.
