Það er óhætt að segja að grásleppuvertíðin hér á Akranesi í ár sé ein sú besta í manna minnum. Sem dæmi þá hafa þeir félagar Eiður Ólafsson og Kristófer Jónsson á Ísaki Ak 67 fiskað 29,3 tonn af grásleppuhrognum en þeir luku vertíðinni fyrir fáeinum dögum síðan. Þeir félagar á Keili Ak eru einnig að ljúka sinni vertíð en þeir klára sína 62 daga 16. maí og er afli hjá Keilismönnum einnig í kringum 30 tonn sem er frábært. Rétt er að geta þess að vertíðin hjá hverjum grásleppubát er einungis í 62 daga og að fá tæp 30 tonn á þeim dögum er glæsilegur árangur eins og áður sagði.
Það er ekki bara að veiðin hafi verið góð heldur var verðið á grásleppuhrognum í sögulegu hámarki í ár en um 1000 kr. fengust fyrir kílóið upp úr sjó. Því má áætla að aflaverðmetið sé um 30 milljónir hjá þeim félögum á Ísaki og hásetahluturinn því nálægt 5,3 milljónum fyrir vertíðina sem stóð í 62 daga. Það hefur áður komið fram hér á heimasíðunni að hér eru á ferðinni miklir jaxlar til sjós og það liggur mikil vinna að baki þessum tekjum.
Þeir félagar á Keili og Ísaki Ak eru félagsmenn í sjómannadeild Verklýðsfélags Akraness og vill félagið óska þeim til hamingju með glæsilega vertíð og að skapa um leið umtalsverðar gjaldeyristekjur fyrir þjóðarbúið sem ekki veitir af um þessar mundir.
