Hinn árlega ferð með eldri félagsmenn verður farin í lok þessa mánaðar. Í ár verður Reykjanesið skoðað enda margar náttúruperlur á því svæði.
Starfsmenn félagsins eru að leggja lokahönd á dagskrána og verður eldri félagsmönnum sent bréf í lok þessarar viku þar sem óskað verður eftir að félagsmenn skrái sig fyrir tilsettan tíma.
Í fyrra var farið á Snæfellsnesið og heppnaðist sú ferð afskaplega vel og var til að mynda metþátttaka í þeirri ferð en um 130 eldri félagsmenn fóru í þá ferð.
