Félagsmaður sem hefur greitt í sjóðinn í fulla sex mánuði á rétt á eftirfarandi greiðslum úr sjúkrasjóði félagsins:
-
Sjúkradagpeningum (þegar veikindarétti er lokið hjá vinnuveitenda.)
-
Fæðingarstyrk.
-
Endurgreiðslu vegna krabbameinsskoðunar. (1.500 krónur)
-
50% endurgreiðslu vegna sjúkranudds (18 þúsund hámark)
-
Dánarbótum.
-
Sjúkradagpeningum vegna áfengismeðferðar/fíkniefnameðferðar.
Nánari upplýsingar veita starfsmenn Verkalýðsfélags Akraness. Sími 430-9900.
Stéttarfélag á hraðri uppleið.
